Einstaklingar eða lið keppast um að svara spurningum og leysa þrautir tengdum íslenskri og erlendri tónlistar og kvikmynda menningu.
Inniheldur:
700 spurningar og þrautir 1 Spilaborð 10 Leikpeð Leiðbeiningar
Einstaklings- eða liðakeppni
Skiptið ykkur í lið eða keppið án liðsfélaga. Skiptist á að spyrja hvort annað spurninga og leysa skemmtilegar þrautir.
Fjölbreyttar spurningar
Spurningar skiptast í: almennar spurningar, textabrot botnaðu lagið, valmöguleika spurningar, rétt eða rangt, syngja og leika.
Ert þú stjarnan í þínum hóp?
Vertu fyrst/ur á endareit til þess að standa uppi sem sigurvegari. Nú ert þú krýnd/ur stjarnan og getur sett upp kórónuna til þess að sýna vinum og fjölskyldu hvað þú ert gáfuð/gáfaður